Íbúðin

Efst er heimilið, blár punktur fyrir miðju er skólinn og neðst er miðbærinn
Á kortinu hér að ofan sjáið þið hvar ég bý, það tekur mig 35 mín að ganga í skólann og svo aðrar 30 mín að komast í miðbæinn, gangandi sko! Það tekur sporvagninn ca. 15 mín að komast niður í bæ, sem er bara fínt. Bláa línan er ef maður fer þessa leið í bíl, þannig að hana er ekkert að marka.
Íbúðin er voða fín en það er eitt sem er lítið og það er baðherbergið, það er mjög lítið! Auðvitað eru allir velkomnir í heimsókn en ekki á sama tíma, það gæti verið erfitt.
Það er svo hægt að klikka á myndirnar til þess að fá þær stærri. Það er erfitt að ætla að taka góðar myndir af íbúðinni í svona þrengslum.
- Inngangurinn
- Rennibraut í garðinum
- Setsvæði og grill í garðinum
- Eldhúsglugginn og svefnherbergisglugginn
- Stofan og svefnsófinn
- Stofan og eldhúsið
- Herbergið
- Eldhúsið með drasli
- Efst er heimilið, blár punktur fyrir miðju er skólinn og neðst er miðbærinn










Fín íbúðin þín
Kósí. Bíddu ertu ekki lengi að skrifa núna svona með hendina í fatla
Hehe, svo fyndin María. Nei ég er eiginlega ekkert lengur að skrifa núna, því ég get tekið hendina úr fatlanum og lagt hana og tölvuna og pikkað svakalega mikið
Það var nú fallegt af öðrum íbúum hússins að setja upp leikvöll fyrir þig svo þú hafir e-ð fyrir stafni þegar þú ert ekki í skólanum, annars er íbúðin flott og gangi þér vel í skólanum.