Blóðbankinn
Áður en ég fór frá Íslandi þá ákvað ég að gefa blóð, að sjálfsögðu hjá Blóðbankanum! Ég veit ekki hvað það er en mér líður alltaf eitthvað betur þegar ég hef gefið blóð…..eins og maður friði sálina eða eitthvað
Ég held að þetta sé ánægjulegasti staður sem hægt er að heimsækja á landinu (allavega í top 10). Það eru alltaf allir í svo góðu skapi, starfsfólkið er með eindæmum vingjarnlegt og það er einfaldlega bara skemmtilegt að fara þangað…..þ.e.a.s. fyrir þá sem eru ekki með nálafóbíu. Það væri kannski ekki galið fyrir sumt afgreiðslufólk að fara á námskeið hjá þeim í Blóðbankanum hvernig eigi að koma fram við viðskiptavini, haha
Annars er ekkert nýtt að frétta hérna nema kannski bara að það er voða fínt veður.

Skildu eftir svar