Heppinn maður!
Hann Vignir hefur nú stundum fjallað um mig á blogginu sínu, stundum hafa sögunar ýkst eitthvað enda á þetta að vera skemmtileg lesning. Ekki vissu allir sem lásu bloggið hans að þetta væru ýkjur og hélt mamma í byrjun haustsins að ég væri lentur í slæmum félagsskap þegar hann sagði frá því þegar ég átti að hafa klárað rauðvínsbeljuna, koníakið (veit ekkert hvernig það er skrifað) og farið því næst á strippbúllu og ég veit ekki hvað og hvað…..en allur misskilningur var leiðréttur síðar
Blessaður kallinn er stundum aðeins utanvið sig, eða kannski að það sé svo mikið að gerast að augun ná ekki að greina allt þetta áreiti. Fyrir nokkrum vikum vorum við á gangi, hann þurfti ógurlega að senda sms og mátti það sko ekki bíða þangað til við værum komnir á leiðarenda. Ég gekk aðeins á undan greyinu og ákvað svo að bíða eftir unglingnum, í sömu andrá labbaði maðurinn á stætóskýli!!! Hahaha, þetta var yndisleg sjón. Hann gekk nánar tiltekið á auglýsingu á hlið skýlisins og skildi ekkert í því hvað það var að þvælast þarna fyrir honum.
Nú um daginn fórum við upp í Storo, verslunarmiðstöðina. Þegar við vorum á útleið var sjálfvirki hurðaropnarinn eitthvað seinn á sér…ég fór út um miðjuna þar sem að hún var nýopnuð….Vignir hinsvegar fór aðeins til hliðar og auðvitað beint á hurðina sem var að opnast.
Ég fann eitt video sem að sannar það að fleiri lenda í því að labba á eitthvað, hverjir hafa svo sem ekki lent í því. Ég ætti ekki að segja mikið enda smá hrakvallabálkur.
http://kvikmynd.is/video.asp?land=&offset=27&id=7490
Það er frábært að hafa svona skemmtara með sér hérna í Osló. Annars er það að frétta að maðurinn ætlar að bjóða mér í mat í kvöld og er ég mjög þakklátur fyrir það, til þess að þakka honum þá fær hann þessa færslu að gjöf.

Skildu eftir svar