Hátíð í bæ
Látum snjóa hérna, hóhóhó.
I’m back! Ég hef ekki verið í sambandi við umheiminn undanfarna daga, vegna lærdóms, en er allur að koma til.
Þá er þessari fyrstu önn af fjórum lokið í þessu námi: 25%, 1/4, 2/8, 4/16, 8/32, 16/64 o.s.frv
Á tímum hélt ég að þessi dagur myndi aldrei renna upp en hann gerði það og þvílíkur léttir. Framtíðin er þó óráðin, hvað gerist á nýju ári….kemur í ljós.
En ég er sem sagt búinn að skila verkefninu stóra og einnig flytja það, en það var gert í dag. Okkur Vigni gekk vel með þetta og small allt saman á endanum eftir miklar vökunætur og smá stress, en gaman að þetta heppnaðist allt vel.
Því er kominn smá þreyta í mann þar sem að svefninn undanfarið hefur frekar verið í blundarformi. Eftir 4 tíma þurfum við að leggja á stað út á flugvöll og fljúgum til Köben og komum svo heim um kl 15 á morgun með Iceland – Express. Þannig að það er réttast að ná smá svefni núna.
Það verður svo óendanlega gaman að koma heim að það hálfa væri nóg. Helga mín kemur svo suður á fimmtudag þannig að þetta veruð skemmtileg helgi og mikið að gera. Ég ætla því að fagna aðventunni þessa helgina með mínu fólki þar sem að ég hef ekki haft tíma í það til þessa, haha.
Jæja ætla ekki að hafa þetta lengra, tjái mig betur síðar.
Hafið þið það óendanlega gott.
Helgi hamingjusami!

Vertu velkominn heim…kæri Helgi og njóttu vel
Til hamingju Helgi.
Gleðileg jól þér og þinna til handa
Velkominn heim!